ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Lauslætið falið fyrir forsíðuviðtal

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:09 › 21. desember 2009
Tiger Woods þaggaði niður í framhjáhaldsfrétt fyrir tveimur árum með því að samþykkja að birtast á forsíðu Men's Fitness.

Tiger Woods þaggaði niður í framhjáhaldsfrétt fyrir tveimur árum með því að samþykkja að birtast á forsíðu Men's Fitness.

:Það var ekki að undra að ritstjórn tímaritsins Golf Digest yrði hvumsa árið 2007 þegar Tiger Woods samþykkti að veita tímaritinu Men's Fitness, systurtímariti National Enquirer, ítarlegt viðtal. Golf Digest hafði gefið milljónir dala árlega til góðgerðarfélags Tigers Woods, Tiger Woods Foundation, auk ýmislegs annars. En þrátt fyrir það hafði Golf Digest aldrei boðist að komast jafnnálægt kylfingnum og Men's Fitness hafði boðist.

Samþykki Tigers Woods fyrir þessu einstæða viðtali var tilkomið vegna sérstaks samkomulags fulltrúa Tigers og útgefanda Men's Fitness og National Enquirer eftir að hið síðarnefnda hótaði að birta ljósmyndir sem teknar höfðu verið af Tiger Woods í félagsskap þjónustustúlkunnar Mindy Lawton í kyrrstæðri bifreið á bílastæði. Frá þessu samkomulagi er greint á vefsíðu Wall Street Journal.

Nánar er fjallað um málið í DV í dag



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.