Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, er með réttarstöðu sakbornings í rannsókn sérstaks saksóknara, Ólafs Haukssonar, á viðskiptum einkahlutafélagsins Exeter Holding, samkvæmt heimildum DV. Hann er einn af fáum sem vitað er að hafi fengið réttarstöðu sakbornings í rannsóknum sérstaks saksóknara á íslenska efnahagshruninu. Jón Þorsteinn hefur verið úrskurðaður í farbann vegna málsins.
Embættið rannsakar hvort auðgunarbrot og umboðssvik hafi átt sér stað í málinu sem snýst um tvær lánveitingar upp á 1,4 milljarða króna sem Byr veitti til eignarhaldsfélagsins Tæknisetur Arkea/Exeter Holding í október og desember 2008. Lánið til Arkea var notað til að kaupa stofnfjárbréf stjórnarmanna og starfsmanna Byrs í sparisjóðnum, meðal annars bréf Jóns Þorsteins, á yfirverði. Veðið fyrir láni Exeter var að öllu leyti í stofnfjárbréfunum sem keypt voru.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna