Kultida Woods, móðir kylfingsins Tiger Woods, er afar sár og reið út í son sinn. Þetta fullyrðir náinn fjölskylduvinur í samtali við People-tímaritið. Er hún samt sögð ætla að standa þétt við bakið á honum þrátt fyrir að gjörðir hans hafi valdið henni miklu hugarangri.
„Hún er sár, reið og vonsvikin út í Tiger. Hana langar að vita hvernig hann gat gert fjölskyldu sinni þetta. Hún elskar hann og ætlar að styðja við hann en hún þarf tíma til að vinna sig í gegnum þetta,“ segir fjölskylduvinurinn.
Kultida, sem er 65 ára gömul, hefur ætíð staðið þétt við bakið á Tiger og mætt á ófá golfmót til að hvetja son sinn. Hún er þó sögð niðurbrotin vegna frétta af framhjáhaldi hans og þykir henni einnig mjög vænt um Elin Nordegren, eiginkonu Tigers, sem sögð er ætla að sækja um skilnað á næstunni.
„Hún kann mjög vel við Elin og elskar barnabörnin sín meira en allt,“ segir fjölskylduvinurinn. Faðir Tigers, Earl Woods, sem lést úr krabbameini fyrir nokkrum árum hélt framhjá Kultidu fyrir margt löngu og sagðist Tiger þá vera mjög vonsvikinn út í föður sinn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu