ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Vonskuveður í Bandaríkjunum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:44 › 19. desember 2009

Vonskuveður ríkir nú á austurströnd Bandaríkjanna. Mikið fannfergi fylgdi í kjölfarið og var um þrjátíu sentímetra lag af nýföllnum snjó á ýmsum svæðum sem hefur riðlað flestum erindagjörðum Bandaríkjamanna fyrir jólin. Bandaríkjamenn virtust ekki vera velbúnir fyrir vetrarveðrið og festu bíla sína ítrekað í ófærðinni. Barack Obama Bandaríkjaforseti varð að hætta við að ferðast til Hvíta hússins í Washington með þyrlu vegna ófærðar og var því ekið.

Við Obama blasti alhvít jörð í dag er hann kom frá Loftlagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.