Tiger reynir að detta ekki úr æfingu. Hann virðist forðast allt ljós eins og heitan eldinn - bæði dagsljósið og sviðsljósið.
Tiger Woods hefur ekkert sést opinberlega síðan að upp komst um framhjáhald hans í byrjun mánaðarins. Nágrannar kappans hafa hinsvegar séð hann læðast út á næturna með golfsettið á bakinu og virðist Tiger því vilja halda sér í góðri æfingu.
„Hann fer þegar komið er myrkur svo enginn sjái. Það er kannski ósköp eðlilegt því hvað gerir hann betur en að spila golf?,“ segir nágranni Woods. Er Woods sagður fara á æfingasvæði í nágrenninu þar sem æfir sveifluna.
Eiginkona Tigers, Elin Nordegren, hefur þegar haft samband við virtan skilnaðarlögfræðing og er búist við að skilnaður þeirra hjóna gangi í gegn í byrjun næsta árs. Er Tiger þó sagður gera allt sem í hans valdi stendur til að bjarga hjónabandi sínu. Elin Nordegren er þó sögð standa fast á sínu og fer hún til fjölskyldu sinnar í Svíþjóð yfir jólin ásamt tveimur börnum þeirra.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung