ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Réðst á Berlusconi - bannaður á Facebook

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:15 › 19. desember 2009
Aðdáendasíðu Tartaglia hefur verið lokað.

Aðdáendasíðu Tartaglia hefur verið lokað. Mynd AFP

Facebook-samskiptavefurinn hefur lokað einni stærstu aðdáendasíðu Massimo Tartaglia, mannsins sem réðst á forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, á dögunum.

Síðan sem um ræðir var komin með næstum hundrað þúsund aðdáendur á innan við tveimur sólarhringum. „Hvers kyns upphafning ofbeldis eða hótanir gagnvart einstaklingum muni ekki líðast á Facebook. Við munum bregðast fljótt við öllum ábendingum um slíkt og fjarlægja það efni sem um ræðir,“ segir í tilkynningu frá samskiptavefnum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.