Goðsagnakennda rokksveitin Rage Against the Machine reynir nú hvað hún getur að bjarga jólunum í Bretlandi. Tom Morello, gítarleikari sveitarinnar, og félagar hans í sveitinni vinna nú að því að ná lagi sínu Killing in the name of í efsta sæti breska vinsældarlistans. Með því vilja þeir bjarga Bretum frá tónlistarósköpnuðinum sem þeir segja X-Factor þáttinn framkvæma með útgáfu á fremur hefðbundnu popplagi frá sigurvegara þáttarins Joe McEderry og ætla þeir að gera allt sem í þeirra valdi stendur að koma í veg fyrir að lag X-Factor stjörnunnar nái á topp vinsældarlistans breska.
„Þetta lítur út fyrir að vera stærsti tónlistarbardaginn í sögu breskrar tónlistar,“ sagði Tom Morello í samtali við breska dagblaðið The Sun. „Þetta er herferð sem hefur það að markmiði að bjarga breska vinsældarlistanum frá meðalmennsku,“ segir Tom.
Herferðin hófst hvar annarstaðar en á Facebook. Hópur fólks lagði til að Bretar niðurhali Killing in the name of til að koma því í efsta sæti vinsældarlistans til að bjarga Bretum frá X-Factor stjörnunni yfir jólin. Simon Cowell, dómari í X-Factor, segir á sinn einskæra máta þessa herferð vera eins barnalega og hugsast getur.
Breska ríkisútvarpið sætir nú harðri gagnrýni eftir að slagari rokkhljómsveitarinnar Rage Against the Machine, Killing In the Name, var spilaður í morgunþættinum Radio 5live Breakfast á fimmtudag. Óheflað málfar í texta lagsins fór víst gríðarlega fyrir brjóstið á Bretum en tvær milljónir manna voru að hlusta þegar lagið fór í loftið.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung