ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Mótmæltu meintu aðgerðarleysi stjórnvalda

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:33 › 19. desember 2009
Á þriðja hundrað manns mótmæltu á Austurvelli í dag.

Á þriðja hundrað manns mótmæltu á Austurvelli í dag. Myndir Bragi Þór Jósefsson

Fjórði kröfufundur Hagsmunasamtaka heimilanna og Nýs Íslands fór fram á Austurvelli í dag. Fundurinn hófst klukkan 15 og samkvæmt upplýsingum DV sótti á þriðja hundrað manns fundinn. Voru samtökin að mótmæla tregðu stjórnvalda og aðgerðarleysi varðandi lánakjör heimilanna.

Á fundinum í dag tók Bjarki Steingrímsson, stjórnarmaður í VR og fyrrverandi varaformaður VR, til máls. Þá flutti Kristján Hreinsson ljóð og Ellen Kristjánsdóttir söng. Fundarstjóri var Lúðvík Luðvíksson frá samtökunum Nýju Íslandi.

„Það er kominn tími til að stjórnvöld bregðist við kröfum samtakanna um réttlátar og sanngjarnar leiðréttingar, bremsu á frekara tjón og tímasetta áætlun um afnám verðtryggingar hið allra fyrsta. Það gengur ekki lengur að hunsa kröfur fólksins í landinu, sérstaklega ekki í ljósi þess að á fundi HH með AGS kom fram að sjóðurinn telur afslætti á lánasöfnum bankanna eiga að ganga áfram að fullu til lántaka,“ segir í tilkynningu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.