ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Landsliðsmarkvörður tapaði milljörðum 2008

15:22 › 19. desember 2009
Birkir og Magnús Kristinssynir.

Birkir og Magnús Kristinssynir.

Birkir Kristinsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, fjárfestir og starfsmaður í einkabankaþjónustu Íslandsbanka, tapaði rúmlega 2 milljörðum króna í fyrra vegna fjárfestinga eignarhaldsfélags í hans eigu, BK-42. Eiginfjárstaða þessa félags er neikvæð um sem nemur rúmum 2 milljörðum króna og er það tæknilega gjaldþrota.

Birkir, sem var einn af hluthöfum eignarhaldsfélagsins Gnúps ásamt bróður sínum, skuldar Banque Havilland í Lúxemborg, áður Kaupþingi, meira en 450 milljónir króna á meðan eignir hans nema tæpum 380 milljónum króna. Birkir er því í mínus upp á tæpar 74 milljónir króna.

Líkt og DV hefur greint frá tapaði Birkir milljörðum á fjárfestingum sínum í fjárfestingarfélaginu Gnúpi á árunum 2007-2008. Birkir seldi Magnúsi bróður sínum hlut sinn í Gnúpi á sjö milljarða króna um sumarið 2007. Gnúpur lenti svo á hliðinni á seinni hluta ársins og lagði Birkir 1,5 milljarða króna inn í félagið í nóvember til að aðstoða bróður sinn við að reyna að bjarga því. Tæpum tveimur mánuðum síðar lá hins vegar fyrir að Birkir hefði tapað þessum fjármunum þar sem Gnúpur þurfti að selja eignir sínar með gríðarlegu tapi.

Ofan á þetta bættist að Magnús greiddi Birki einungis 4 milljarða króna af þeim 7 sem hann ætlaði að greiða honum fyrir hlutinn í Gnúpi. Bræðurnir gerðu svo með sér nauðasamninga í fyrra þar sem Birkir féll frá kröfunni á hendur Magnúsi. Ljóst er því að tap hans af Gnúpi var gríðarlegt og spilar stórt hlutverk í skuldastöðu hans í dag.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.