ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Hvassviðri veldur usla á Austurlandi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:10 › 19. desember 2009

Björgunarsveitarmenn úr Björgunarsveitinni Geisla á Fáskrúðsfirði urðu að bregðast hratt við er þak fak í heilu lagi af garðhúsi á Fáskrúðsfirði. Mikið hvassviðri er í á Austurlandi og segir Heiðar Árdal Jóhannsson, formaður Geisla, sterkar hviður valda töluverðum vandræðum. Er þeir komu á vettvang lá þakið á veginum við húsið. Björgunarsveitarmenn brugðust hratt við og skorðuðu þakið.

Um hádegisbil fauk þakskyggni og þak á íbúðarhúsi á Seyðisfirði og var björgunarsveitin Ísólfur kölluð á vettvang auk þess sem rúða brotnaði í öðru húsi vegna veðurs. Veðurstofan hefur sent frá sér viðvörun vegna hvassviðris á Austurlandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.