ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Hlutlausir aðilar komi að skýrslu rannsóknarnefndar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:16 › 19. desember 2009
Hörður Torfason.

Hörður Torfason.

Hörður Torfason, Egill Helgason og Robert Spano eru meðal þeirra sem þingmenn Hreyfingarinnar vilja að verði kallaðir á fund Allsherjanefndar til að ræða frumvarp um þingmannanefnd sem ætlað er að fjalla skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið.

Þeir sem þingmenn Hreyfingarinnar vilja að mæti fyrir nefndina eru Þóra Kristín Ásgeirsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands, Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, Þorvaldur Gylfason hagfræðingur, Hörður Torfason tónlistarmaður, Egill Helgason þáttastjórnandi, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur, Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra, Ólafur Hannibalsson blaðamaður og rithöfundur, Gunnar Sigurðsson leikstjóri, Eva Joly, Jón Þórisson aðstoðarmaður Evu Joly og Róbert Spanó umboðsmaður Alþingis.

„Það hlýtur að vera öllum ljóst að alþingismenn eru ekki færir um að leggja hlutlaust mat á eigin störf, foringja sinna eða samstarfsmanna til margra ára. Nauðsynlegt er að hlutlausir aðilar komi að vinnslu málsins á öllum stigum þess, hvort heldur sem er sem álitsgjafar við lagasmíð eða fagmenn við afgreiðslu skýrslunnar,“ segir í tilkynningu frá Hreyfingunni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.