ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Harður árekstur rétt hjá Akureyri

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:17 › 19. desember 2009
Einn var fluttur á slysadeild og kvartaði hann undan verkjum í brjósti.

Einn var fluttur á slysadeild og kvartaði hann undan verkjum í brjósti. Mynd DV

Betur fór en á horfðist þegar tvær bifreiðar skullu framan á hvor aðra á Moldhugahálsi, rétt norðan við Akureyri, á áttunda tímanum í kvöld. Um var að ræða amerískan pallbíl og fólksbíl og var ökumaður fólksbílsins fluttur á slysadeild.

Að sögn lögreglu er vont veður á svæðinu og var töluverð ísing á veginum þegar slysið varð. Ökumaður fólksbílsins var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild og kvartaði hann undan verkjum í brjósti. Loka þurfti veginum um stundarsakir vegna slyssins.

Sex voru í pallbílnum og voru þau öll flutt til skoðunar á slysadeild. Að sögn lögreglu er ekki talið að neinn þeirra hafi slasast. Ökumaður fólksbílsins var einn á ferð.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.