Útlit er fyrir að föngum í bandarískum fangelsum muni fækka á næstunni. Er því um að ræða tímamót þar sem föngum hefur fjölgað ár frá ári síðan snemma á áttunda áratug liðinnar aldar. Þá varð ákveðin stefnubreyting í fangelsismálum í Bandaríkjunum og fóru dómstólar að taka upp harðari refsingar.
Nú þegar farið er að kreppa að og grafa þarf dýpra ofan í budduna eftir fjármagni hafa mörg ríki Bandaríkjanna endurskoðað stefnu sína með það að markmiði að draga úr kostnaði sem óhjákvæmilega fylgir föngum og fangelsum.
Árið 2008 hófu 739 þúsund fangar afplánun sem var 3.500 fleiri en sleppt var. Þá hafði munurinn milli þeirra sem hófu afplánun og luku afplánun ekki verið jafn lítill í um fjóra áratugi. Er nú útlit fyrir að á þessu ári hafi fleiri föngum verði sleppt úr haldi en hefja afplánun. 1,6 milljónir manna voru í bandarískum fangelsum árið 2008.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung