Eva Joly segir eðlilegt að kyrrsetningu eigna sé beitt í rannsóknum á meintum efnahagsbrotum. Mynd Heiða Helgadóttir
Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, segir það fullkomlega eðlilegt að kyrrsetja eignir manna og úrskurða þá í farbann meðan verið að rannsaka meint brot þeirra. Joly áritaði 200 eintök af bók sinni Hversdagshetjur í Eymundsson í Austurstræti í dag.
Eva Joly sagði í kvöldfréttum RÚV að kyrrsetning eigna, líkt og í tilfelli Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, og farbannn Jóns Þorsteins Þorsteinssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Byrs, séu eðlileg úrræði í glæparannsókn. Segir hún að mikilvægt sé að menn hverfi ekki á brott meðan verið er að rannsaka mál þeirra og í efnahagsbrotamálum sé mikilvægast að fara á eftir peningunum.
Þá sagði Eva að átta mánaða fangelsisdómur tveggja fyrrverandi starfsmanna Kaupþings séu hugsanlega það sem koma skal fyrir aðra sem leiddir verða fyrir dóm.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna