Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Stefán Hilmar Hilmarsson, fjármálastjóri 365 miðla og fyrrverandi framkvæmdastjóri Baugs Group, gerir tuttugu og fimm milljóna króna launakröfu í þrotabú Baugs Group. Stefán er eiginmaður Friðriku Hjördísar Geirsdóttur sem er kynnir í Wipeout-þáttunum.
Krafa Stefáns samanstendur af launum vegna sex mánaða uppsagnarfrestar, bílahlunninda og uppsöfnuðu orlofi. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag en skiptastjóri þrotabús Baugs telur að Stefán hafi ekki átt rétt á þessum launum þar sem hann hafi verið framkvæmdastjóri þess.
„Ég er einfaldlega að reyna að sækja launin mín. Mér finnst leiðinlegt að þurfa að fara dómstólaleiðina en ég hef fulla trú á því að krafa mín nái í gegn,“ segir Stefán.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna