„Sé Kastljós að segja hófdrykkju stríð á hendur, er það í sjálfu sér virðingarvert. Hins vegar er ómaklegt, að Ögmundur Jónasson sé gerður að blóraböggli í því stríði,“ segir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra. Í Kastljósi í gær var greint frá því að Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, hefði neitað Kastljósi um viðtal þar sem hann hafði fengið sér vín með mat.
Í samtali við DV.is í gærkvöldi sagði Ögmundur að hann hefði farið út að borða fyrr um kvöldið og drukkið vín með matnum. Það væri prinsipp hjá sér að fara ekki í viðtöl við slíkar aðstæður. Þingmaðurinn Tryggvi Þór Herbertsson hefur áður gagnrýnt frétt Kastljóssins og nú bætist Björn Bjarnason við.
„Erfitt er að átta sig á því, hvað vakir fyrir Kastljósi með slíkri fréttamennsku. Var verið að bera blak af Sigmundi Erni Rúnarssyni, sem olli undrun og jafnvel hneykslan margra vegna framgöngu sinnar í ræðustól þingsins fyrir nokkru?,“ spyr Björn á bloggsíðu sinni.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna