ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Birgitta: Kýs ekki blindandi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:42 › 19. desember 2009

„Það er yfirlýst stefna mín að greiða ekki atkvæði um mál sem ég hef ekki haft tíma til að kynna mér,“ skrifar Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, á bloggsíðu sína en hún segir furðulegt að sjá þingmenn geiða atkvæði eftir einhverri línu sem þeir vita ekki neitt um. „ Það ætti að tilheyra gamla Íslandi. Því drjúgan hluta næsta árs munum við svo eyða í að lagfæra galla á löggjöf sem var ekki nægilega vel unnin,“ skrifar Birgitta.

Birgitta segist vera búin að fá það staðfest að þingið hafi engin völd. „Annars þá er ég búin að fá það staðfest að þingið hefur nákvæmlega engin völd og kannski er bara kominn tími á að leggja það niður í núverandi mynd ef þingmenn fara ekki að standa í lappirnar og krefjast breytinga og endurheimti völd sín frá framkvæmdavaldinu,“ skrifar Birgitta.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.