ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Mamma Tigers vonsvikin

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:25 › 18. desember 2009
  • Tiger er eitt af andlitum Tag Heuer úrframleiðandans.

    Tiger er eitt af andlitum Tag Heuer úrframleiðandans.

Kutilda Woods, móðir Tiger, er sögð vera sár, vonsvikin og reið þeim að því er virðist óbætanlega skaða sem kylfingurinn kvensami hefur valdið fjölskyldu sinni. Og enn einn styrktaraðilinn er að yfirgefa hann.

Í samtali við People-tímaritið segir heimildarmaður nærri Woods-fjölskyldunni að Kutilda hafi áhyggjur af barnabörnum sínum.

„Hún elskar hann og mun styðja við bakið á honum í gegnum súrt og sætt, en hún þarf smá tíma til að jafna sig á þessu,“ hefur People eftir heimildarmanninum góða.

Úrframleiðandinn Tag Heuer hefur síðan gefið það út þá yfirlýsingu að fyrirtækið hyggist minnka notkun sína á Tiger sem andliti þess næstu mánuðina. Þetta er þvert á fyrri yfirlýsingar fyrirtækisins þar sem stuðningi var lýst við kylfinginn.

Í tilkynningu fyrirtækisins segir að það muni meta samkomulag sitt við Tiger í nánustu framtíð út frá því hvort hann ákveði að snúa aftur í golfið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.