Meðal þeirra sem unnið hafa sérverkefni fyrir ríkisstjórnina frá því hún tók fyrst við völdum 1. febrúar á þessu ári eru tveir hæstaréttardómarar. Þeir eru Markús Sigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson sem leysir af Pál Hreinsson formann rannsóknarnefndar Alþingis í Hæstarétti. Markús vann meðal annars sérfræðistörf um fjármálafyrirtæki fyrir efnahags- og viðskiptaráðuneytið fyrir tæpar 300 þúsund krónur. Viðar Már vann einnig verk fyrir sama ráðuneyti fyrir 460 þúsund krónur.
Viðar Már vann einnig að breytingum á skaðabótalögum fyrir dómsmála- og mannréttindaráðuneytið fyrir 360 þúsund krónur.
Björg Thorarensen, lagaprófessor, hefur á tímabilinu unnið sérfræðistörf fyrir forsætis- og utanríkisráðuneytið fyrir samtals 3,1 milljón króna. Björg er eiginkona Markúsar dómara.
Hæsta einstaka greiðslan til einstaklings snertir kaup fjármálaráðuneytisins á þjónustu Þorsteins Þorsteinssonar við sérfræðilega ráðgjöf, meðal annars við uppgjör milli nýju og gömlu bankanna. Hann hefur fengið greiddar um 10 milljónir króna frá 1. febrúar síðastliðnum.
Kaup á verkefnastjórn vegna sóknaráætlunar ríkisstjórnarinnar námu tæpum 6 milljónum króna og er það stærsti útgjaldaliður forsætisráðuneytisins af þessum toga.
Mannvit fékk á sjöundu milljón króna frá iðnaðarráðuneytinu fyrir athuganir á hagkvæmni metanólverksmiðju.
IDEA Consult NV kannaði áhrif kreppu á fjármögnun háskóla fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið og þáði fyrir það 3,5 milljónir króna.
Kaup á lögfræðiþjónustu frá einstaklingum og lögmannsstofum eru áberandi.
Samtals nema greiðslurnar vel á annað hundrað milljónir króna. Fæst eru verkin talin útboðsskyld.
Samantektin er gerð að beiðni Birkis Jóns Jónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, sem lagði fram skriflega fyrirspurn um málið á Alþingi.

Hemmi Gunn fallinn frá