ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

„Ég er hrikalega reiður út í þá“

15:30 › 18. desember 2009
Margir af fyrrverandi viðskiptavinum eignastýringardeildar Glitnis eru ekki sáttir við að starfsmenn deildarinnar hafi fjárfest í skuldabréfum og víxlum Milestone.

Margir af fyrrverandi viðskiptavinum eignastýringardeildar Glitnis eru ekki sáttir við að starfsmenn deildarinnar hafi fjárfest í skuldabréfum og víxlum Milestone.

Fjölmargir af þeim einstaklingum sem lýst hafa kröfum í þrotabú eignarhaldsfélagsins Milestone keyptu skuldabréf og víxla Milestone af eignastýringardeild Glitnis. Almennt er um að ræða kröfur um upphæðir sem nema nokkrum milljónum og allt upp í 30 milljónir króna. Eigendur Milestone, Karl og Steingrímur Wernerssynir, voru stórir hluthafar í Glitni í gegnum eignarhaldsfélagið Þátt International.

Starfsmenn eignastýringardeildarinnar keyptu skuldabréfin og víxlana fyrir hönd viðskiptavinanna, enda er það svo að tilgangur eignastýringar er að ávaxta fjármuni viðskiptavinanna. Viðskiptavinirnir þurftu því almennt ekki að gefa leyfi sitt fyrir kaupunum á bréfunum í Milestone. Samkvæmt heimildum DV fjárfesti eignastýringardeildin aðallega í bréfum Milestone fyrir hönd viðskiptavinanna um haustið 2007 og síðar.
Þá var Milestone komið í nokkra rekstrarerfiðleika og þurfti að verða sér út um fjármagn, meðal annars til að standa skil á erlendum lánum. Það var meðal annars í þeim tilgangi sem eignarhaldsfélagið Svartháfur var notað til að leppa milljarðalánveitingu frá Glitni til Milestone í ársbyrjun 2008.

Einn af þeim einstaklingum sem lýst hafa kröfu í þrotabú Milestone segist vera svo reiður út í starfsmenn eignastýringardeildarinnar að hann geti eiginlega ekki rætt um málið. „Ég get eiginlega ekki talað um þetta því ég verð svo reiður. Ég get ekki talað um þetta án þess að fá flog. Ég er hrikalega reiður út í þá,“ segir viðskiptavinurinn fyrrverandi.

Hann segist ekki hafa fengið að vita að starfsmenn eignastýringarinnar hefðu keypt skuldabréf Milestone fyrir sig fyrr en nokkrum mánuðum eftir að þeir gerðu það. Viðskiptavinurinn tapaði á annan tug milljóna fyrir vikið. Aðspurður hvenær eignastýringin hafi fjárfest í skuldabréfinu segir viðskiptavinurinn að hann geti ekkert sagt til um það þar sem eignastýringin hafi séð um viðskiptin. „Ég veit ekki hvenær þetta var og ég get ekki svarað þér... Það hvarflaði ekki að mér að ég ætti eitthvað í Milestone,“ segir viðskiptavinurinn fyrrverandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?