ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Woods og Nordegren að skilja

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:52 › 17. desember 2009
Búið spil. Bandarískir fjölmiðlar fullyrða að Nordegren ætli að sækja um skilnað frá eiginmanni sínum, Tiger Woods.

Búið spil. Bandarískir fjölmiðlar fullyrða að Nordegren ætli að sækja um skilnað frá eiginmanni sínum, Tiger Woods.

Elin Nordegren, eiginkona kylfingsins Tigers Woods, hefur ákveðið að sækja um skilnað. Þetta er fullyrt í bandarískum fjölmiðlum í dag. Ætlar Nordegren að sækja um skilnað frá Woods á nýju ári vegna framhjáhalds hans.

Náin vinur Nordegren sagði í samtali við MSNBC-sjónvarpsstöðina í gær að Nordegren væri sterk kona og eiginmaður hennar hefði orðið henni, fjölskyldu hennar og sjálfum sér til skammar.

Í gær var greint frá því að Nordegren hefði sést án giftingarhringsins á dögunum. Þá hefðu flutningamenn sést bera út kassa af heimili þeirra hjóna. Þótti það renna stoðum undir þær kenningar að Nordegren hefði fengið sig fullsadda af fréttum af framhjáhaldi hans.

Þá segir ónafngreindur heimildamaður í samtali við People-tímaritið að Nordegren hefði þegar hitt skilnaðarlögfræðing. „Hún er búin að ákveða sig. Hann (Tiger Woods) mun ekkert breytast.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.