Hatröm valdabarátta í stjórn VR heldur áfram. Í vikunni rak meirihluti stjórnar félagsins Bjarka Steingrímsson varaformann, en hann hefur aðeins setið í rúma 9 mánuði í stjórn. Ástæðurnar eru sagðar trúnaðarbrestur og samstarfsörðugleikar, en Bjarki hefur gagnrýnt stjórnina harðlega . Átökin í VR hófust fyrir rúmu ári þegar upp komst að Gunnar Páll Pálsson, þáverandi formaður félagsins, hefði tekið þátt í að fella niður persónulegar ábyrgðir lykilstarfsmanna Kaupþings, rétt fyrir gjaldþrot bankans. Hávær krafa var um að hann viki sæti og að endurnýjun myndi eiga sér stað í stjórn VR. Síðan þá hafa nánast stanslaus átök verið innan stjórnarinnar, þar sem tveir hópar hafa barist um völdin.
Skuggarnir stjórna enn
Fimmtán manns eiga sæti í stjórn VR, sjö nýir stjórnarmenn voru kjörnir síðastliðið vor og þar af sex af L-listanum, meðal annars Kristinn Örn Jóhannesson, sem felldi Gunnar Pál sem formann í mars. Þrátt fyrir þessa endurnýjun hefur sá hópur ekki verið í meirihluta í stjórn. Rótgróinn hópur sem hefur verið nefndur VR-skuggarnir er arfleifð stjórnartíma Magnúsar L. Sveinssonar, sem hætti árið 2003, og síðar Gunnars Páls Pálssonar, sem hætti fyrr á þessu ári, heldur meirihluta í stjórn. Magnús var formaður VR í rúm 22 ár og í kjölfarið tók Gunnar við, hann var vilhallur Magnúsi og því hefur ákveðinn kjarni haldið völdum í stjórn félagsins lengi. Brottrekstur Bjarka er hluti af þessum átökum, en hann lýsir stjórninni sjálfur þannig að hann hafi, ásamt fjórum öðrum stjórnarmönnum, myndað kjarna innan stjórnarinnar, sem stóð gegn meirihlutanum, en nýi formaðurinn sé einnig vilhallur VR-skuggunum.
Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR, fjallaði um brottrekstur Bjarka á vefsíðu sinni á miðvikudag og velti því fyrir sér hvort hann verði einnig rekinn. „Það hlakkar sjálfsagt í verkalýðskóngunum sem komu vænu höggi á góðan mann í dag. Verði þeim að góðu,“ skrifar Ragnar og sakar Ástu Rut Jónasdóttur, nýjan varaformann félagsins, um tækifærismennsku.
„Ég lít á þetta sem sigur“
Bjarki, sem hefur verið áberandi í umræðunni og komið fram í fjölmiðlum sem stjórnarmaður í VR, segist ekki vera bitur þrátt fyrir brottrekstur. Í yfirlýsingu frá stjórn VR er Bjarki sakaður um að hafa dylgjað um meint leynimakk innan félagsins, farið með ósannindi og sakað samstjórnendur sína um blekkingar.
Bjarki hafnar þessu. „Ég var aldrei í vinsældkeppni innandyra í VR. Það sem ég lagði af stað með í upphafi var siðbót og að það yrði litið til VR sem félagsins þar sem siðbótin hófst í samfélaginu. Boðað gagnsæi var hins vegar orðin tóm, það stóð aldrei til í stjórninni. Ég vildi skoða bókhald félagsins, það á ekki að vera neitt leyndarmál í hvað peningar félagsins eru notaðir. Fólk hlýtur að þurfa að tala samkvæmt sinni eigin sannfæringu, það var ekkert annað sem ég gerði. Ég þekkti ekkert annað í stjórn félagsins en að vera með vindinn í fangið, enda erum við búin að vera í minnihluta. Ég er enn þá kátur og þegar fólk grípur til svona örþrifaráða, þá er maður á hárréttri leið. Svona mótlæti herðir mann bara og ég lít á þetta sem sigur,“ segir Bjarki.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir