Kylfingurinn Tiger Woods virðist vera mjög miður sín eftir að upp komst um framhjáhald hans með fjölda kvenna. Er Tiger sagður hafa einangrað sig og segir náinn vinur hans að ekki sé hægt að ná í hann í síma. Þá er hann sagður eyða dögunum fyrir framan sjónvarpið þar sem hann horfir á teiknimyndir allan liðlangan daginn.
Bandarískir fjölmiðlar hafa eftir vini hans að Tiger hafi skipt um símanúmer daginn eftir umferðaróhappið sem hann lenti í. Þeir geti því ekki náð í hann í síma og kylfingurinn hafi einangrað sig. Er Tiger sagður dvelja í öðru af tveimur húsum sínum í Flórída. Þá segir vinur hans að Tiger geti ekki einu sinni horft á uppáhaldsíþróttastöðvarnar sínar þar sem umfjallanir þeirra snúist að mestu leyti um framhjáhaldið. Horfir hann því á teiknimyndir allan daginn.
„Vinir hans hafa miklar áhyggjur og telja að hann takist á við vandamál sín á óheilbrigðan hátt,“ segir ónafngreindur félagi Tigers. Tiger er góður vinur körfuboltastjörnunnar Charles Barkley og segist hann ekki hafa náð í hann síðan upp komst upp hneykslið.
Í gær var greint frá því að eiginkona hans, Elin Nordegren, ætli að sækja um skilnað. Er hún sögð hafa ætlað að gefa Tiger annað tækifæri en hún hafi hætt við það eftir að sífellt fleiri konur stigu fram í dagsljósið.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung