Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Mosfellsbæ um miðjan dag í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 150 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á 250 grömm af amfetamíni sem voru vandlega falin.
Við aðgerðina, sem er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna, naut lögreglan aðstoðar tveggja fíkniefnaleitarhunda frá tollgæslunni en annar þeirra fann amfetamínið sem um ræðir. Í bílskúr hússins var jafnframt bifreið sem reyndist hafa verið stolið. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna