Hin 48 ára gamla Theresa Rogers, sem er elsta konan af þeim ellefu sem stigið hafa fram í dagsljósið og sagst eiga í ástarsambandi við Tiger Woods, heldur því víst fram að kylfingurinn sé barnsfaðir hennar og vill tvær milljónir dollara fyrir þögn sína.
Talið er að hún hafi ráðið til sín stjörnulögfræðinginn Gloriu Allred til að ná samkomulagi við kylfinginn. Enn fremur er talið að Allred hafi samið við Rachel Uchitel um þriggja milljóna dollara greiðslu frá Woods til að hún þegði um meint samband þeirra.
Sex ára dóttir?
Rogers á víst að hafa sagt vinum sínum að hún teldi Woods vera föður sex ára gamallar dóttur sinnar. Slúðursíðan RadarOnline heldur því fram að hin 48 ára gamla Rogers hafi verið að reyna að eignast barn með Woods, og að eiginmaður hennar, fatahönnuðurinn Wayne Rogers, hafi lagt blessun sín yfir athæfið.
Ástarsamband Woods og Rogers mun hafa byrjað áður en hann kvæntist Elin Nordegren árið 2004, en að það hafi haldið áfram eftir að Woods varð kvæntur maður.
Dóttir Rogers mun vera hvít á hörund, sem fær margan til að ætla að Woods sé ekki faðir barnsins. Þar að auki mun Rogers einnig hafa verið að halda við serbneskan körfuknattleikskappa um það leyti sem stúlkan fæddist.
Jessica Simpson dregin inn í málið
Söngkonan Jessica Simpsons brást ókvæða við í gær eftir að fréttir sögðu hana hafa átt í ástarsambandi við Woods. Tímaritið Star sagði að hún og Woods hefðu skipts á símanúmerum og tölvupóstföngum þegar þau hittust á golfmóti í sumar.
„Ég trúi því ekki að ég sé á forsíðu Star Magazine með Tiger Woods, þvílíkur brandari. Hin sláandi frásögn inni í blaðinu er... trommusláttur... LYGI,“ skrifaði Simpson á Twitter síðu sína í gær.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung