Tveir heppnir lottóspilarar gáfu sig fram til Íslenskrar getspár í gær en þeir unnu stóran lottópott á dögunum og fá 30 milljónir í sinn hlut. Annar mannanna er öryrki á fertugsaldri með verulega skerta starfsorku og hefur ekki lengur getu til að vera á vinnumarkaðnum.
Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að maðurinn hafði boðið móðir sinni á rúntinn í Vesturbænum og þegar þau keyrðu Ægissíðuna ákvað hann að koma þar við í N1 og kaupa fimm 10 raða Lottómiða.
Hann vissi sem var að hann væri hvort eð er að styrkja gott málefni og auðvitað væri smá von um vinning. Vinningshafinn horfði á útdráttinn í sjónvarpinu um kvöldið en það var ekki fyrr en eftir miðnætti sem hann leit á textavarpið og sá á fjórða miðanum sem að hann skoðaði að þar var hann með þrjár réttar tölur. Hann skoðaði svo miðann betur og sá þá að hann hafði haft allar fimm tölurnar réttar.
Hann öskraði upp og hljóp inn í herbergi til móður sinnar sem hélt að eitthvað alvarlegt hafði gerst en það var mikil gleði þegar hann sagði henni að hann hefði unnið 30 milljónir í Lottó. Vinningshafinn ætlar að hugsa vel hvað hann gerir við peninginn en ætlar að byrja á að kaupa sér sjálfskiptan bíl sem hann getur ferðast á um landið því það hefur hann mjög gaman af.
Hinn vinningshafinn keypti sér miða í Samkaup Strax á Flúðum. Þetta er fjölskyldumaður með tvö börn og búa þau í höfuðborginni en voru í helgarferð í sumarbústað á Flúðum. Það var ekki fyrr á sunnudagskvöldið á leiðinni heim að þau skoðuðu miðann en þau höfðu heyrt í útvarpinu að annar vinningsmiðinn hefði einmitt verið seldur á Flúðum og fengu að sögn smá fiðring í magann við þær fréttir. Miðinn var dreginn upp og yfirfarinn og viti menn.... draumurinn hafði ræst, rúmlega 30 milljónir í vasann hjá þessari heppnu fjölskyldu.
Íslensk getspá óskar báðum vinningshöfum innilega til hamingju með vinningana





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna