ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Öfundsjúkur skar eyrað af manni með sveðju

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:30 › 17. desember 2009
Skar eyrað af með sveðju.

Skar eyrað af með sveðju. photos.com

Hernan Rodriguez frá Long Island í Bandaríkjunum réðist vopnaður sveðju og skammbyssu að manni sem var í heimsókn á heimili fyrrverandi eiginkonu hans á miðvikudaginn.

Rodriguez veittist að hinum 22 ára gamla Marlin Aguilar með sveðjunni og skar af honum eyrað í kjölfarið. Aguilar hlaut skurði í andlitið og hendur að auki.

Hinn 34 ára gamli Rodriquez flúði af vettvangi eftir árásina en lögreglan hafði upp á honum skömmu síðar. Þá hafði hann beint skammbyssunni að sér og svipt sig lífi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.