ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Myrti dóttur sína af trúarlegum ástæðum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:08 › 17. desember 2009
  • Mehmet Goren. Steinrunninn við uppkvaðningu dómsins.

    Mehmet Goren. Steinrunninn við uppkvaðningu dómsins.

Karlmaður frá London hefur verið dæmdur í 22 ára fangelsi eftir að hann var fundinn sekur um að fremja svokallað sæmdarmorð á 15 ára dóttur sinni. Maðurinn myrti dóttur sína því hún varð ástfangin af Súnní múslima en fjölskyldan er öll Aleví múslimar.

Mehmet Goren myrti dóttur sína, Tulay, í janúar 1999 en lík dóttur hans fannst aldrei. Nú hefur systir hennar Nulay Guler biðlað til 49 ára gamals föður síns að binda enda á martröð fjölskyldunnar og upplýsa hvar lík hennar er.

Í réttarhöldunum kom fram að Mehmet Goren hefði stjórnað fjölskyldu sinni með harðri hendi. Eitt sinn hafi hann reynt að eitra fyrir henni með gasi og einu sinni reynt að sprauta eiginkonu sína með rottueitri.
Og þegar hann komst að ástarsambandi dóttur sinnar við Halil Unal missti hann gjörsamlega stjórn á sér. Að hluti til afþví að hann gæti þá ekki gift hana gegn 5000 punda gjaldi, en helst var ástæðan sú að Unal væri ekki fylgjandi réttrar múslimastefnu.

Það var í janúar 1999 sem Goren sagði átta ára syni sínum að kyssa Tulay bless því hann myndi aldrei sjá hana aftur.

Lögreglan sagði það móður hennar að þakka að hægt var að draga Goren fyrir dómstóla rúmlega tíu árum eftir að hann framdi ódæðið.

Goren sýndi engin svipbrigði þegar hann var dæmdur sekur um morðið á dóttur sinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.