Það ætlaði allt um kolla að keyra á Twitter-síðu bandarískrar móður í Flórída eftir að hún tweet-aði á síðu sína á meðan bráðaliðar reyndu lífgunartilraunir á tveggja ára syni hennar.
Sonur hennar hafði fallið í sundlaug og fannst fljótandi í lauginni með andlitið niður. Þrjátíu og fjórum mínútum eftir að sjúkrastarfsmenn mættu að heimili Shellie Ross í Flórída birti hún skilaboð á Twitter-síðu sína, „Vinsamlegast biðjið eins og aldrei fyrr, tveggja ára strákurinn minn datt í laugina.“
Fimm klukkustundum síðar var sonur hennar úrskurðaður látinn og þá var Ross aftur mætt á Twitter að tilkynna 5,000 vinum sínum á Twitter-samskiptavefnum slæmu fréttirnar. „Er að minnast milljón dollara barnsins míns,“ skrifaði hún (e. Remembering my million dollar baby)
Skömmu síðar birti hún mynd af syni sínum á síðunni.
Sú staðreynd að Ross var að vesenast í að uppfæra Twitter-síðu sína á meðan bráðaliðar reyndu að bjarga deyjandi syni hennar hefur vakið hörð viðbrögð í Bandaríkjunum. Blogg-, Twitter- og Facebookheimar hafa logað vegna framferðis móðurinnar.
Lögreglan í Flórída kveðst vita af tweet-i* móðurinnar á meðan þetta gekk á og kveðst ætla að rannsaka málið samhliða drukknun drengsins.
*Tweet eru uppfærslur á Twitter síðu, sambærilegar uppfærslu á stöðu (e. Status) á Facebook.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung