ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Hrinti stelpu sem svívirti föður hans

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:44 › 17. desember 2009
Árásin átti sér stað í Vestmannaeyjum í byrjun árs.

Árásin átti sér stað í Vestmannaeyjum í byrjun árs. Mynd DV

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Var manninum gefið að sök að hafa ýtt harkalega við stelpu fyrir utan veitingastaðinn Lundann í Vestmannaeyjum þann tíunda janúar síðastliðinn.

Stúlkan féll aftur fyrir sig og skall með hnakkann í götuna með þeim afleiðingum að hún missti meðvitund, hlaut brot í hnakkabeini og blæðingu inn á heila. Við skýrslutöku hjá lögreglu sagði maðurinn að stúlkan hefði gengið að honum og byrjað að svívirða föður hans.

Héraðsdómur taldi sannað að maðurinn hefði ýtt við stúlkunni og þótti hæfileg refsing fangelsi í 45 daga. Dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Þá var manninum gert að greiða konunni rúmar 700 þúsund krónur í skaða- og miskabætur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.