Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 10. júlí síðastliðnum yfir þrítugum karlmanni, Eugenio Daudo Silva Chipa, fyrir nauðgun. Hann var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Nauðgunin átti sér stað að morgni fimmtudagsins 21. maí á þessu ári í húsasundi við Trönuhraun í Hafnarfirði.
Konan hafði hitt manninn á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur en hún hafði farið út með vinnufélögum sínum um kvöldið. Þar hitti hún manninn og bauð hann konunni í glas. Í kjölfarið fór maðurinn að reyna við konuna en hún hafði ekki áhuga. Um fjögur leytið um nóttina ákvað konan að fara heim til sín en þá hitti hún manninn aftur fyrir utan staðinn. Hann bauð henni far heim sem hún og þáði.
Maðurinn var ákærður fyrir að veitast að konunni og hafa við hana samræði með því að beita ofbeldi. Konan hlaut margvíslega ákverka, meðal annars glóðarauga, mar og bólgu á vinstri kinn og vanga auk annarra áverka víðsvegar um líkamann. Maðurinn neitaði sök fyrir dómi
Auk þess að sæta fjögurra og hálfs árs fangelsi þarf maðurinn að greiða konunni 1,8 milljónir króna í skaðabætur.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna