ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Of feitur til að drepa en ekki til að vera dæmdur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:51 › 17. desember 2009
Edward Ates kvaðst vera of feitur til að drepa, en dómarinn var ekki sammála og dæmdi hann í lífstíðarfangelsi fyrir morð.

Edward Ates kvaðst vera of feitur til að drepa, en dómarinn var ekki sammála og dæmdi hann í lífstíðarfangelsi fyrir morð.

Edward Ates hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tengdason sinn í New Jersey. Það þýðir að málsvörn hans virkaði ekki, en hann hélt því fram að hann væri of feitur til að drepa nokkurn mann.

Hinn 65 ára gamli Ates var fundinn sekur í síðasta mánuði fyrir að myrða Paul Duncsak á heimili hans í New Jersey. Dómari ákvað að hæfileg refsing fyrir hann væri lífstíðarfangelsi.

Réttarhöldin stóðu yfir í sex vikur og vöktu mikla athygli fjölmiðla, þá einna helst fyrir þær sakir að Ates byggði vörn sína á því að hann væri of feitur til að hlaupa upp og niður stiga til að skjóta Duncsak, og síðan komast undan með að aka í 20 klukkustundir heim til mömmu sinnar í Louisiana.

Ates var 62 ára og um 130 kíló þegar Duncsak var myrtur árið 2006. Hann hyggst þó afrýja dómnum sem kveðinn var upp í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.