Við efnahagshrunið varð þjóðin fyrir áfalli og hætt er við því að hún búi ekki yfir sama sjálfstrausti í kjölfarið. Dorrit Moussaieff, forsetafrú Íslands, skilur samt ekki af hverju Íslendingar ættu að missa sjálfstraustið. Hún og forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, eru í ítarlegu viðtali í nýjasta tölublaði Nýs Lífs.
„Ef þú setur sögu þjóðarinnar í samhengi eru fjögur ár mjög stuttur tími. Við höfum ríkar ástæður fyrir því að vera full sjálfstrausts. Við höfum náð meiri árangri en margar þjóðir. Hvert og eitt okkar er fullfært um að gera eitthvað alveg sérstakt. En það má ekki gera ráð fyrir því að það gerist á einni nóttu. Og ef það gerist á einni nóttu verðum við að spyrja okkur á hvaða grunni það er byggt,“ segir Dorrit.
Hún segir að Íslendingar megi ekki gleyma þeim árangri sem þeir hafa náð. „Þegar ég ber samfélagið saman við það sem var að gerast hér þegar ég kom hingað fyrst fyrir tíu árum er það eina sem við þurfum að vinna virkilega í að draga úr glæpatíðni og færa hana aftur til þess sem hún var þá. Ísland er enn jafn hreint og þá, heilbrigðisþjónustan er eins góð og menntunarstigið er það sama. Allt annað er orðið betra, maturinn er betri, þjónustan er betri og við erum á svo margan hátt orðin færari þátttakendur í alþjóðasamfélaginu. Af hverju ættum við ekki að vera full sjálfstrausts?“ spyr hún ákveðið og leggur áherslu á orð sín: „Af því að nokkrir einstaklingar klúðruðu sínum málum?“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna