Auk þess að vera dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn stúlkunni var hann dæmdur fyrir vörslu barnakláms. Mynd tengist efni fréttar ekki beint
Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann, fæddan 1985, í 20 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku. Maðurinn var 22 ára þegar brotin áttu sér stað í janúar 2008.
Maðurinn og stúlkan höfðu verið í sambandi á MSN-spjallforritinu fyrir atvikið og þótti Hæstarétti sýnt að maðurinn hefði haft einbeittan ásetning til að eiga kynferðisleg samskipti við stúlkuna þótt honum væri ljóst að hún væri einungis 14 ára gömul.
Samkvæmt læknisvottorði býr hún við væga þroskahömlun. Þótti Hæstarétti sýnt að maðurinn hefði brotið gróflega gegn stúlkunni þegar hann lét hana hafa við sig munnmök og síðan haft við hana endaþarmsmök, og hann ætti sér engar málsbætur.
Þá var hann einnig fundinn sekur um að hafa haft barnaklám í vörslum sínum.
Auk þess að vera dæmdur í 20 mánaða fangelsi var manninum gert að greiða fórnarlambinu 600.000 krónur í miskabætur.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna