Hæstiréttu staðfesti dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra varðandi lengd refsingar. Þyngdi skaðabótagreiðsluna.
Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa sett gúmmíbolta í leggöng konu og skilið hann þar eftir án vitneskju hennar. Gúmmíboltinn sat þar í þrjár vikur og hafði konan þá hlotið bólgur og alvarlega sýkingu í leggöngin þegar þurfti að fjarlægja boltann með aðgerð.
Segir í dómi Hæstaréttar að maðurinn hafi á „ófyrirleitinn hátt stofnað lífi og heilsu A í augljósan háska er hann í kynmökum við A setti gúmmíbolta, sem hún taldi vera kynlífsleikfang upp í leggöng hennar og skildi þar eftir án vitneskju hennar.“
Maðurinn hafði áfrýjað dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra frá 16. desember í fyrra og krafðist ómerkingar dómsins.
Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa hótað lögreglumönnum við störf lífláti.
Þótti hæfileg refsing mannsins ákveðin skilorðsbundið fangelsi í sex mánuði og þá var honum gert að greiða 807.290 krónur í skaðbætur.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna