ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Boðað til kröfufundar á Austurvelli

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:52 › 17. desember 2009
Frá kröfufundi á Austurvelli síðasta vetur.

Frá kröfufundi á Austurvelli síðasta vetur. Mynd Kristinn Magnússon

Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland boða til kröfufundar á Austurvelli næstkomandi laugardag klukkan 15. Verður tregðu stjórnvalda og aðgerðarleysi varðandi lánakjör heimilanna mótmælt, að því er fram kemur í tilkynningu.

Segir í tilkynningunni að samtökin hafi þrýst á stjórnvöld allt þetta ár og gert tilraunir til að ná samvinnu með þeim til að leiðrétta stökkbreyttan höfuðstól lána og setja þak á frekara tjón. Stjórnvöld hafi hinsvegar reynt að fría sig ábyrgð og vísað málum til fjármálafyrirtækjanna.

„Það er kominn tími til að stjórnvöld bregðist við kröfum samtakanna um réttlátar og sanngjarnar leiðréttingar, bremsu á frekara tjón og tímasetta áætlun um afnám verðtryggingar hið allra fyrsta. Það gengur ekki lengur að hunsa kröfur fólksins í landinu , sérstaklega ekki í ljósi þess að á fundi HH með AGS kom fram að sjóðurinn telur afslætti á lánasöfnum bankanna eiga að ganga áfram að fullu til lántaka,“ segir í tilkynningunni.

Á þessum síðasta kröfufundi fyrir jólin mun Bjarki Steingrímsson stjórnarmaður í VR og fyrrverandi varaformaður VR flytja ræðu, Kristján Hreinsson flytur ljóð og Ellen Kristjánsdóttir syngur. Lúðvík Lúðvíksson, frá samtökunum Nýtt Ísland verður fundarstjóri.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.