ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Bannað að blóta á BBC

16:57 › 17. desember 2009
Killing in the Name. Ekki útvarpsvænt lag að mati BBC.

Killing in the Name. Ekki útvarpsvænt lag að mati BBC.

Breska ríkisútvarpið sætir nú harðri gagnrýni eftir að slagari rokkhljómsveitarinnar Rage Against the Machine, Killing In the Name, var spilaður í morgunþættinum Radio 5live Breakfast laust fyrir klukkan 9 í morgun. Óheflað málfar í texta lagsins fór víst gríðarlega fyrir brjóstið á Bretum en tvær milljónir manna voru að hlusta þegar lagið fór í loftið.

Til að skilja afhverju BBC var að spila þennan slagara frá árinu 1992 þá ber að minnast á að Facebook-hópur hefur ákveðið að þessi jólin skuli ekki enn eitt lag frá X-Factor stjörnu toppa vinsældarlistana. Hefur hópurinn því ákveðið að koma lagi Rage Against the Machine á topp listans á nýjan leik og í tilefni þess voru Zach de la Rocha og félagar hans í sveitinni í viðtali í þættinum í morgun.

Þeim var síðan boðið að spila lagið, sem gerði allt vitlaust í upphafi tíunda áratug síðustu aldar, í beinni útsendingu.

En innan skamms kom að þeim kafla lagsins þar sem söngvarinn Rocha byrjar ítrekað að öskra: „Fuck you, I won't do what you tell me“ og þá fóru viðvörunarbjöllurnar að hringja hjá BBC-mönnum.

Útvarpskonan Shelah Fogarty brást ókvæða við og stöðvaði spilun lagsins og mátti heyra hana öskra: „Komið þessu úr loftinu!“

Fogarty bað síðan hlustendur afsökunar á svívirðingunum og sagði að hætta hafi þurft spilun lagsins því „það varð allt í einu eitthvað allt annað en við bjuggumst við.“

„Reyndar bjuggumst við við þessu, en við báðum þá margoft um að blóta ekki í laginu, en þeir gerðu það samt,“ segir Fogarty og hvatti þess í stað fólk til að kaupa smáskífu X-Factor stjörnunnar Joe McElderry.

Meira að segja George Michael varð fyrir því á dögunum að segja F-orðið í beinni útsendingu og fékk bágt fyrir hjá yfirmönnum BBC.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.