Þjóðarkosningu Eyjunnar um Icesave-málið, sem hófst á sunnudag, lauk í dag. Tæplega 70 prósent kjósenda sem greiddu atkvæði vilja að Alþingi synji ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu við Breta og Hollendinga en alls kusu 7.454.
5.188 þeirra vildu að Alþingi synjaði ríkisábyrgð. 28,8 prósent, eða 2.144, vildu að Alþingi samþykkti ríkisábyrgð og 122 tóku ekki afstöðu eða 1,6 prósent.
Við kosninguna var stuðst við vefkerfið Íslendingaval sem þróað hefur verið af sérfræðingum Íslenskrar erfðagreiningar. Um var að ræða fyrstu öruggu rafrænu kosninguna sem allir kjósendur hér á landi gátu tekið þátt í að því er segir á Eyjan.is í dag.
Spurningin sem lögð var fyrir var: „Vilt þú að Alþingi samþykki eða synji ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu við Breta og Hollendinga?“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna