ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

4 bíla árekstur á Miklubraut

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:48 › 17. desember 2009

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu var þung seinnipartinn í dag og fram eftir kvöldi. Nokkur minniháttar umferðaróhöpp áttu sér stað, þar á meðal fjögurra bíla árekstur á Miklubraut, en engin slys urðu á fólki samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan segir talsverðan eril hafa verið í austurbæ Reykjavíkur en að mestu rólegt annarsstaðar.

Þá hefur verið einstaka útkall vegna ölvunar á kaffistöðum bæjarins og eitt dæmi um áflog í austurborginni en aðilar voru á bak og burt þegar lögreglan kom að.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.