Hayden Wright er kannski bara fjögurra ára strákur frá Tennessee í Bandaríkjunum. En lögreglan fann hann samt sem áður á aðfaranótt miðvikudags, klæddan í kjól af stelpu og ölvaðan á miðri götu eftir að hafa drukkið nærri heilan bjór. Hayden hafði þar að auki farið inn í hús nágrannans og stolið gjöfum undan jólatrénu.
Móðir hans, April Wright, er 21 árs gömul og er að skilja við barnsföður sinn og eiginmann sem er í fangelsi.
Vill komast í fangelsi til að hitta pabba sinn
April veit ekki hvernig ungum syni hennar tókst að komast út úr húsi um miðja nótt, opna sér bjór og stela jólagjöfum nágrannans. Hún er bara fegin að hann sé óhultur. April segir að barnalæsingar séu á hurðum hússins þannig að Hayden gæti ekki flúið. Hann virðist hins vegar hafa komist framhjá öllum varúðarráðstöfunum heimilisins.
„Hann flýr stundum til að leita að föður sínum,“ segir April. „Hann vill koma sér í vandræði svo hann fari í fangelsi því þar er pabbi hans.“
April segir að Hayden hafi fundið bjórinn í kæliskáp föður síns í bakgarðinum en skilur ekki enn hvernig honum tókst að opna hann.
Skrautlegt ferðalag sem endaði í jólakjól lítillar stúlku
Á ferðalagi sínu um miðja nótt hringdi Hayden litli meðal annars dyrabjöllunni hjá nágrannanum sem sá þann stutta teyga bjórinn. Hayden gerði sér því næst ferðalag til annars nágranna þar sem hann fór inn um ólæsta útidyrahurð og stal fimm innpökkuðum jólagjöfum undan jólatrénu. Þar á meðal einum sem innihélt brúnan kjól. Og það var þessi kjóll sem Hayden litli var klæddur í þegar lögreglan fann hann ráfa um götur nágrennisins.
Eftir að lögreglan hafði komið honum heim til sín flýtti April sér með hann á sjúkrahús þar sem hún segir að dælt hafi verið upp úr honum. Hann hefur það víst ágætt í dag.
Barnaverndaryfirvöld í bænum Chattanooga ætla ekki að svipta April forræði yfir Hayden vegna atviksins.
Fjölmargir fjölmiðlar í Bandaríkjunum greina frá þessu í dag. Hér að neðan má sjá sjónvarpsfrétt staðarfjölmiðils í Chattanooga um málið. Sjón er sögu ríkari.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung