Skilnaður í vændum? Eiginkona Tigers er sögð hafa fengið sig fullsadda af stanslausum fréttum af framhjáhaldi eiginmannsins.
Bandarískir fjölmiðlar greina frá því í dag að flutningabíll hafi sést fyrir utan heimili kylfingsins Tiger Woods og eiginkonu hans Elin Nordgren síðdegis í gær. Þá var Elin mynduð fyrir utan veitingastað sama dag þar sem enginn giftingarhringur var sjáanlegur.
Þykir þetta renna stoðum undir þær kenningar að eiginkona Tigers hafi fengið sig fullsadda af stanslausum fregnum af framhjáhaldi eiginmanns síns og þau séu að skilja. Tiger hefur viðurkennt að hafa verið eiginkonu sinni ótrúr og hefur hann tekið sér ótímabundið frí frá golfi til að leysa úr vandamálunum sem skapast hafa að undanförnu.
Samkvæmt bandarískum fjölmiðlum sáust starfsmenn flutningafyrirtækis bera nokkra kassa út úr húsi þeirra hjóna og verðmæt listaverk. Hefur eiginkona hans keypt sér hús í Svíþjóð og er Tiger þegar sagður hafa flutt út af heimili þeirra.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung