Nú þegar bandarísku þættirnir um Simpson fjölskylduna fagna tuttugu ára afmæli sínu vex óánægja hörðustu aðdáenda þáttanna og segja þá hafa misst sjarmann. Er svo komið að dyggustu aðdáendur þáttarins neita að horfa á hann, öðrum finnst þátturinn ennþá fyndinn en gráta það að framleiðendur hans hafi ekki hætt framleiðslu hans á hátindi vinsælda Simpsons fjölskyldunnar.
Felst helsta gagnrýnin í því að þættirnir státi ekki lengur af góðri sögu heldur byggi þeir á tilefnislausu gríni sem sé þreytandi áhorfs. Eru framleiðendur þáttanna sagðir þeir einu sem hlægja að gríni þáttanna en þeir eru Al Jean og Matt Groening. Þættirnir eru þó sagðir betri en hinn almenni gamanþáttur.
„Ef þeir skila enn hagnaði og framleiðendur þáttarins njóta þess enn að skapa þá þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu að þættirnir eiga að halda áfram. En þróun þáttanna er þó orðin á þá leið að þeir eru orðnir að því sem þeir gerðu stöðugt grín að,“ segir Jason Burch, Simpsons-spekingur, á heimasíðu CNN. "





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung