ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Ramos leitar að konu

14:11 › 14. desember 2009
Hosmany Ramos unir hag sínum ágætlega á Skólavörðustígnum.

Hosmany Ramos unir hag sínum ágætlega á Skólavörðustígnum. Mynd: Úr Einkasafni

Lýtalæknirinn Hosmany Ramos sem dæmdur hefur verið fyrir tvö morð og situr inni í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg leita að íslenskri konu til að hefja farsælt samband með. Hann ætlar að fara alla leið og skipta um trú og vill eignast börn.

Í bréfi sem hann sendi DV segist hann vera farinn að leita sér að konu til þess að hefja nýtt líf með. Hann segist trúa mikið á örlögin og að þau hafi leitt hann til landsins.

Hann segist leita að konu til þess að kvænast til lífstíðar og setjast hér að með, eignast svo börn, hvort sem það er með hefbundinni leið eða með ættleiðingu.

Í bréfinu segir einnig: „Þetta er opið bréf til einmanna sálu. Ef þessi skilaboð snerta hjarta þitt og þú ert kona sem er tilbúin fyrir að verða strax fræg, vera alltaf í sviðsljósinu og á síðum slúðurblaðanna þá ert þú konan sem ég leita að.“

Nánar í DV í dag



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.