„Framsetningin stóðst ekki miðað við það viðtal sem var tekið. Ég tek það mjög alvarlega,“ segir Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV. Í fréttinni sem um ræðir, sem birt var í tíufréttum RÚV þann annan desember, var rætt við Jórunni Frímannsdóttur, formann velferðarráðs Reykjavíkurborgar, um framfærslustyrki borgarinnar og desemberuppbót til handa fátækum.
RÚV hafði greint frá því kvöldið áður, eða þann fyrsta desember, að framfærslustyrkurinn væri lægstur í Reykjavík, eða 115 þúsund krónur, og til að fá desemberuppbót þyrfti fólk að hafa dregið fram lífið á þeirri upphæð í lágmark sex mánuði til að fá tæpar 30 þúsund krónur í jólaglaðning.
Gat ekki svarað
Í fréttinni þann 2. desember sagðist Jórunn fagna því að hjálparstofnanir gætu komið fátækum til aðstoðar. Hún gat hinsvegar engar skýringar gefið á því hvers vegna Reykjavíkurborg kæmi þessum hópi ekki til hjálpar eins og sást berlega í viðtalinu þegar hún varð kjaftstopp. Það var bloggarinn Lára Hanna Einarsdóttir sem vakti fyrst athygli á þessu á bloggsíðu sinni þar sem hún birtir upptöku af fréttinni.
Vildi endurtaka svar sitt
Óðinn segir að fréttamanni RÚV hafi orðið alvarlega á í messunni og fréttin ekki staðist. Hann segir að Jórunn hafi beðið um að fá að endurtaka svar sitt við spurningunni og á það hafi fréttamaður fallist. Þegar fréttin var klippt var hinsvegar fyrra svar borgarfulltrúans notað.
Var beðin afsökunar
„Fréttamaðurinn gerði bara alvarleg mistök og mér fannst ekki stætt á öðru en að taka hana (fréttina) bara út. Skaðinn var skeður og hún var beðin afsökunar. Þetta kemur auðvitað fyrir að einhverjum verði á mistök,“ segir Óðinn og bætir við að Jórunn hafi ekki sóst sérstaklega eftir því að RÚV bæði hana opinberlega afsökunar. „En við áttum fund með henni og báðumst afsökunar á vinnslu fréttarinnar. Mér fannst það svona lágmarks aðgerð að taka þetta út af vefnum,“ segir hann.
Misjafnar áherslur
Í október í fyrra lenti Már Másson, upplýsingafulltrúi Glitnis, í svipuðu atviki og Jórunn þegar hann var í viðtali við norsku NRK Nett-sjónvarpsstöðina. Þegar Már var spurður um bónusgreiðslur til æðstu stjórnenda Glitnis gat hann á engan hátt svarað spurningunni og krafðist þess að viðtalið yrði stöðvað. Sá hluti viðtalsins var hinsvegar sýndur og vakti hann umtalsverða athygli.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
