Skipverjarnir á grindvíska línubátnum Sturlu ætluðu að veiða eitt tonn af þorski utan kvóta, flaka hann sjálfir og færa Fjölskylduhjálp Íslands að gjöf fyrir jólin. Sjávarútvegsráðuneytið stöðvaði góðverkið á þeim forsendum að það væri fordæmisgefandi. Skipstjórinn er steinhissa á þessari ákvörðun og spyr hvar skjaldborg ríkisstjórnarinnar um heimilin sé
„Við strákarnir í áhöfninni vorum að ræða málin, hvað ástandið væri orðið aumt. Þá spratt þessi hugmynd upp að við ættum að bjóðast til þess að flaka ofan í fólkið, svo rákum við augun í blaðið þar sem Fjölskylduhjálp Íslands var að auglýsa eftir matföngum. Þá vorum við harðir á því að framkvæma þetta,“ segir Sigurbjörn L. Guðmundsson, skipstjóri á línubátnum Sturlu, sem gerir út frá Grindavík.
Sigurbjörn reiknar með að skipverjarnir hefðu getað gefið Fjölskylduhjálpinni um 300 kíló af ferskum þorskflökum.
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálparinnar, segir ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins mjög dapurlega. Þörfin fyrir matargjafir hjá Fjölskylduhjálpinni er mikil. Á miðvikudag komu til að mynda um 460 manns á vikulegan úthlutunardag. „Þetta var tvöföld úthlutun, bæði jólamaturinn og hefðbundin matarúthlutun,“ segir hún og bætir því við að Fjölskylduhjálpin sé svo heppin að velunnarar hafi lagt henni til nóg svo enginn þurfi að fara án þess að fá aðstoð.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir