ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Bjarni hættur að tala við DV: „Símadóni og ómerkingur“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:59 › 13. desember 2009
  • Bjarni Benediktsson viðurkennir að hafa hringt í aðaleiganda DV en segist ekki hafa ætlað að reyna að hafa áhrif á fréttaflutning.

    Bjarni Benediktsson viðurkennir að hafa hringt í aðaleiganda DV en segist ekki hafa ætlað að reyna að hafa áhrif á fréttaflutning.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir í samtali við Pressuna að hann ætli ekki framar að ræða við DV. Hann viðurkennir að hafa hringt í Hrein Loftsson, aðaleiganda DV, fyrr í dag en segist ekki hafa reynt að stöðva fréttaflutning blaðsins.

„Ég hef því aldrei farið fram á að Hreinn Loftsson stöðvaði fréttaflutning DV, þó óvandaður sé. Ætlun mín var einfaldlega sú að segja eiganda blaðsins skoðun mína á óásættanlegum vinnubrögðum blaðamanns sem þar starfar og útskýra fyrir honum í hverju ég teldi rangfærslur þess liggja,“ segir Bjarni við Pressuna. Í dag kom fram hjá Hreini Loftssyni að Bjarni hefði átt það erindi við sig að fá hann sem eiganda til að stöðva fréttir DV.

Bjarni hefur ekki kvartað við ritstjóra DV en snéri sér beint til eigandans vegna frétta af því að hann tengist óvéfengjandlega braski með lúxusturn í Makaó. Milljarðatjón varð vegna þeirrar fjárfestingar.
Hreinn segir að Bjarni fari með ósannindi í yfirlýsingu sinni.

Hreinn Loftsson segist standa við yfirlýsingu sína og lýsir Bjarna sem ómerkingi.

„Bjarni Benediktsson er ómerkingur og ætti ekki að koma nálægt stjórnmálum. Hann lýgur því að Pressunni að ég hafi ekki borið upp þá spurningu við hann, hvers hann ætlaðist til af mér í framhaldi af athugasemdum hans við fréttaflutning DV í símtali fyrr í dag. Þessa spurningu bar ég fram og hann svaraði því til að ég ætti að stöðva þennan fréttaflutning. Þetta var ekki langt samtal, það er rétt hjá Bjarna, því ég sagðist ekki lúta boðvaldi hans og hann skyldi gera athugasemdir við ritstjórn DV, ef hann teldi ekki rétt með farið varðandi þessar fréttir. Þá er það einnig rétt hjá Bjarna, að ég skellti á hann, enda er ég ekki vanur að eiga löng samtöl við símadóna af þessu tagi,“ segir Hreinn.

DV mun á morgun halda áfram umfjöllun um fjárfestingar Vafnings og þeirra félaga sem tengjast Bjarna og Wernersbræðrum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.