ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Bjarni Ben vill að eigandi stöðvi DV

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:35 › 13. desember 2009
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, vill að aðaleigandi DV stöðvi fréttaflutning af sínum málum.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, vill að aðaleigandi DV stöðvi fréttaflutning af sínum málum.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fór fram á það í dag við Hrein Loftsson, aðaleiganda DV, í dag að hann stöðvaði fréttaflutning DV af sínum málum.

„Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hringdi í mig fyrr í dag og kvaðst ósáttur við fréttaflutning DV af málum, sem hann tengist. Hann sagði fréttir blaðsins byggjast á ósannindum. Hann hélt áfram og sagði það vera óþolandi, að ég stæði á hliðarlínunni og léti þetta viðgangast. Fréttaflutningurinn hefði leitt til þess að anarkistar sætu um hús hans og vildu valda honum tjóni. Ég spurði hann til hvers hann ætlaðist af mér. Hann var ekkert að skafa af því, hann ætlaðist til þess að ég stöðvaði þennan fréttaflutning. Ég sagði honum, að ég lyti ekki boðvaldi hans. Hann skyldi snúa sér til ritstjórnar DV með athugasemdir sínar og leiðréttingar, en ég hefði ekkert meira við hann að tala,“ segir Hreinn Loftsson.

DV hefur undanfarna daga fjallað ítarlega um fjárfestingar í lúxusturni í Makaó sem Bjarni tengist. Á morgun er áframhald á umfjöllun blaðsins um fyrirtækið Vafning og fjárfestingar þess.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.