Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Einn fremsti ísklifurkappi heims, Guy Lacelle, lést í gær eftir að hafa lent í snjóflóði á fjalli í suðvesturhluta Montana í Bandaríkjunum. Lacelle, sem var kanadískur, var að fara upp gilskorning þegar hópur manna fyrir ofan hann kom af stað snjóflóði sem féll á hann.
Lacelle hafði skapað sér nafn sem einn besti ísklifurkappi heimsins og hafði hann unnið fjölmargar keppnir á ferli sínum, auk þessa að fara ótroðnar slóðir í leiðöngrum sínum. Hann var 54 ára og lætur eftir sig eiginkonu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung