„Við eigum eftir að taka það almennilega saman, hversu mikið safnaðist, en markmiðið okkar var að safna hálfri milljón. Markmiðið náðist og rúmlega það,” segir Steinþór Helgi Arnsteinsson, framkvæmdastjóri hljómplötuútgáfunnar Borgarinnar, sem í gær hélt útgáfutónleika, þar sem allur ágóði af miðasölu rann óskiptur til Fjölskylduhjálpar Íslands.
Á tónleikunum í gær komu margar af vinsælustu hljómsveitum landsins fram, meðal annars Hjaltalín, Hjálmar, Megas & Senuþjófarnir og Baggalútur. Allir tónlistamennirnir gáfu vinnu sína og tæknimenn og aðrir, þáðu aðeins lágmarkslaun fyrir.
Steinþór er að vonum ánægður með útkomuna. „Fjölskylduhjálpin sendi út neyðarkall um daginn og við erum að svara því. Það horfir beint við að hjálpa þeim rétt fyrir jólin og þessi peningur nýtist til að styrkja gott málefni. Við ætlum að afhenda peningana strax í næstu viku,” segir hann. „Það var gaman að sjá að það voru margir sem borguðu meira til að styrkja málefnið enn frekar. Þetta sýnir samhug í verki hjá listamönnum og tónleikagestum, að leggjast á eitt að koma eins góðu málefni og Fjölskylduhjálpinni til styrktar.”





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar