Grunur leikur á stórfelldu samsæri forsvarsmanna Gamla Kaupþings til að halda hlutabréfaverði í bankanum uppi. Mynd DV
Sérstakur saksóknari rannsóknar nú fjögur mál sem stórfellt samsæri forsvarsmanna Gamla Kaupþings til að halda uppi hlutabréfaverði í bankanum. Leikur grunur á nærri hundrað milljarða króna sýndarviðskiptum. Rannsóknin lýtur meðal annars að kaupum Sjeiks Al-Thani á hlutabréfum í bankanum.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Sjónvarpsins.
Þar kom fram að grunur leiki á að bankinn hafi látið leppa kaupa bréf í sjálfum sér fyrir nærri hundrað milljarða króna. Var þetta gert til að halda hlutabréfaverði uppi í sýndarviðskiptum. 26 milljarða króna kaup Sjeiks Al-Thani komu inn á borð yfirvalda skömmu eftir bankahrunið og er málið nú inni á borði sérstaks saksóknara.
Hin þrjú málin tengjast kaupum bresku Gertner kaupsýslubræðunum sem keyptu tveggja prósenta hlut í bankanum í júní á síðasta ári. Þá var Bretinn Kevin Stanford skráðum fyrir stórum hlut í Gamla Kaupþingi þegar bankinn féll sem og Holt, fyrirtæki Skúla Þorvaldssonar. Samkvæmt frétt RÚV eru þessi mál talin tengjast og hluti af stórfelldu samsæri.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna